Vá það er nú svolítið langt síðan ég hef tjáð mig hér á síðunni-það
er alveg rétt hjá Halla frænda, ég verð að vera duglegri að
segja ykkur sögur

Málið er það að ég var svo mikið fyrir
norðan um daginn að ég kunni bara varla á tölvuna lengur þegar ég
kom til baka. Ég er búinn að eyða ca 2 vikum í sveitinni þetta
sumarið. Fór fyrst í maí til að reyna að hjálpa til í sauðburði og
svo var ég í viku þegar Sigtryggur stakk okkur af til Noregs og
London

Hann fór til Haugasunds til að keppa í fótbolta á
Norðurlandamóti ríkisspítalanna og viti menn okkar menn urðu
Norðurlandameistara annað sinn í röð. Við fórum einmitt til Malmö
fyrir 2 árum og þá unnu þeir líka-alveg æðislegt. Þar hittum við
Gumma frænda og hann sýndi okkur ýmislegt í borginni sinni. Já
þetta er haldið semsagt á tveggja ára fresti þetta mót en nú vorum
við Ingvar bara heima á meðan húsbóndinn fór enda mikið ferðalag
fyrir lítinn kropp. Fyrst flogið til London og svo yfir í
Haugasund-alltof mikið ferðalag. Við mæðginin höfðum
það svo gott hjá ömmu litlu í sveitinni, við erum að skiðuleggja
annað ferðalag þangað. Ég er að spá í að fara á morgun norður og
vera í nokkra daga, ná smá tíma þar meðan mamma er í fríi því nú
fer því að ljúka. Hún á að byrja að vinna þann 5.júlí.
Sigtryggur verður bara að vera duglegur að vinna svo hann taki ekki
eftir því að við séum farin

Nei nei-það er mjög mikið að
gera hjá honum í vinnunni, sumrin eru yfirleitt alveg brjáluð hjá
honum. Það er stundum of mikið um að vera! Hann segir það stundum
að hann vilji láta klóna sig til að ná öllu sem þarf að gera

Jæja kannski maður skrifi smá á morgun-veit ekki alveg hvenær við
leggjum í hann í sveitina, en nú verð ég að vera duglegri að láta
vita af mér! Guð blessi ykkur öll-sjáumst síðar...