Ýmsar hugleiðingar
Er sumarið komið?
Tölvugreyið okkar er nú líka seinvirkt og ég nenni sjaldan að
setjast niður og kveikja á apparatinu. En ég get nú samt reynt að
vera duglegri við þetta. Hvað um það....ferðin norður á Akureyri
síðustu helgi gekk vel og var gaman að kíkja á höfuðstað
Það var reyndar skítakuldi á föstudeginum. Ég fylgdist með
Sigtryggi Zidane sýna fótboltataktana í einum leik sem hann spilaði
á útiivelli og mér varð svo kalt eftir leikinn-norðan fýla
var mánudagurinn. Þá tókum við okkur til og keyrðum til Mývatns og
gengum um svæðið og fórum í náttúrulaugarnar þar. Yndislegt alveg
Ég þarf reyndar að mæta reglulega þessa dagana í kírópraktor. Það
er verð að láta braka og bresta í mér til að koma hryggnum á mér í
rétta skorður. Ég er víst eitthvað skekkjast segja þeir. Svo það er
hringjarinn frá Notre Dame. Efast um að það sé spennandi líferni!
framkvæmdir líka heima. Þetta kemur með kalda vatninu. það er mikið
rafvirkjum í kvöld að líta á ljósin og sitthvað fleira. Þar hafið
Tíminn líður hratt......
norðan um daginn að ég kunni bara varla á tölvuna lengur þegar ég
kom til baka. Ég er búinn að eyða ca 2 vikum í sveitinni þetta
sumarið. Fór fyrst í maí til að reyna að hjálpa til í sauðburði og
svo var ég í viku þegar Sigtryggur stakk okkur af til Noregs og
London :lol: Hann fór til Haugasunds til að keppa í fótbolta á
Norðurlandamóti ríkisspítalanna og viti menn okkar menn urðu
Norðurlandameistara annað sinn í röð. Við fórum einmitt til Malmö
fyrir 2 árum og þá unnu þeir líka-alveg æðislegt. Þar hittum við
Gumma frænda og hann sýndi okkur ýmislegt í borginni sinni. Já
þetta er haldið semsagt á tveggja ára fresti þetta mót en nú vorum
við Ingvar bara heima á meðan húsbóndinn fór enda mikið ferðalag
fyrir lítinn kropp. Fyrst flogið til London og svo yfir í
það svo gott hjá ömmu litlu í sveitinni, við erum að skiðuleggja
annað ferðalag þangað. Ég er að spá í að fara á morgun norður og
vera í nokkra daga, ná smá tíma þar meðan mamma er í fríi því nú
Sigtryggur verður bara að vera duglegur að vinna svo hann taki ekki
gera hjá honum í vinnunni, sumrin eru yfirleitt alveg brjáluð hjá
honum. Það er stundum of mikið um að vera! Hann segir það stundum
að hann vilji láta klóna sig til að ná öllu sem þarf að gera :)
Jæja kannski maður skrifi smá á morgun-veit ekki alveg hvenær við
leggjum í hann í sveitina, en nú verð ég að vera duglegri að láta
vita af mér! Guð blessi ykkur öll-sjáumst síðar...
Silvía Nótt hvað??
leikkonan Ágústa Eva heilin og andlitið á bakvið Silvíu okkar
stórstjörnu en hver ætli sé á bakvið fígúruna Geir Ólafs?? Sá
leikari hlýtur að vera mjög hæfileikaríkur-hugsið ykkur að leika
svona fígúru sem heldur því fram að hann sé bestur og flottastur í
hópi söngvara í heiminum!! Í Fréttablaðinu fyrir nokkrum dögum var
heilsíðuauglýsing með mynd af Iceblue (eins og hann vill kalla sig
líka) og texti um það að senda þetta skoffín í næstu keppni sem
semsagt frá stuðningsmönnum Geirs-það hlýtur að vera leikarinn á
bakvið Iceblue og hans föruneyti! Já hann ekkimeirGeir segist vera
meira en 100% öruggur á að sigra eurovision næsta ár og þegar ég
las þetta þá varð mér hugsað til viðtals við Pál Óskar þar sem hann
talar um Silvíu Nótt og keppnina í Aþenu. Það er nefnilega eitt sem
henni Ágústu Evu tókst að sýna fram á í gervi Silvíu-það er að
hroki verður þér að falli! Svo það er eitt sem hægt er að segja
núna við Geir Ólafs-You´re going down!!!:lol:
Kári og kuldaboli!!
félagarnir Kári og kuldaboli. Þetta er nú meiri veðráttan-það er nú
samt sólarlandaveður hér sunnanlands miðað við fyrir norðan! Þar er
virkilega kalt og búið að élja og frysta og aumingja kindurnar
komast ekkert út með nýju afkvæmin sín. Ekki gott það. Jæja þá er
enn einn evróvisjón keppnin búin og ég sem þóttist engan áhuga hafa
á keppninni í ár sat spennt yfir stigagjöfinni í gærkvöld og
fagnaði ákaft góðu gengi myndarlegasta fólksins sem steig á svið í
Aþenu. Mikið hló ég þegar skrímslin yndisfögru spiluðu eftir að
hafa sigrað. Loksins eitthvað annað en silíkon bombur í stuttum
pilsum að syngja pæjupopp-loksins alvöru rokk og læti. Mér fannst
heildina séð fannst mér ekkert varið í þessa keppni. Samt alltaf
einhver sjarmi yfir þessu öllu-þetta er bara partur af vorinu. :D
Helgin er búin að vera róleg og góð. Við Sigtryggur erum búin að
vera að vinna í bókhaldi og dúlla okkur með litla dúlludrengnum
þau í mat hjá okkur ásamt Júlíönnu og Eika. Svo Sigtryggur fékk að
vera aðal kokkurinn-var sendur út með grilltöngina. Þetta var
aldeilis ljómandi gaman. Svo kom pabbi hér í mýflugumynd-er nú líka
skrifa meira í bili-ætla bara að fara að halla mér fljótlega, ég
elskurnar og góðar stundir.
Allt að koma-vonandi!!
Síðustu dagar hafa verið heldur erfiðir og næturnar ekki síst.
Reyndar hélt ég að sumir yrðu meira brjálaðir út af þessu en þeir
vera hlýir og dásamlegir. Við erum búin að nýta veðurblíðuna og
rölta um allan gamla bæinn hér og það er svo gaman að sjá fólkið
svona glatt. Allir að dumda eitthvað útivið og bjóða góðan daginn
eins og í þorpi úti á land, svoleiðis stemning. Það er svolítið
merkilegt hvað allt breytist í svona tíð. Maður er svo bjartsýnn og
ánægður og sér hlutina í öðru ljósi. Það lifnar allt við-fólkið,
dýrin og gróðurinn og mikið á maður nú gott að geta skynjað
veröldina eins og maður gerir. Þaðö er nú þannig með okkur á
þessari eyju að drunginn færist yfir okkur í skammdeginu en svo er
eins og það séu sett ný batterí í mannskapinn þegar vorar og allt
verður miklu skemmtilegra. Já það er um að gera að vera svolítið
hefjast sauðburður í Bitrunni minni og fer mamma á morgun til að
gera allt klárt, sem þýðir að hún missir af afmælisveislunni hans
Óla á laugardaginn. Því er nú ver og miður. Þau eru nú eins og
systkini alltaf hreint svo mér finnst hræðilegt að hún geti ekki
Við Ingóli fórum til hennar Ástu ömmu í dag í smá heimsókn. Ég var
aðeins að reyna að gera hana fína-lita hárið og svona fínerí. Hún
færslu á morgun ef ég hef tíma. Fariði varlega í umferðinni gott
Aumingja lillemann!
að segja að þetta gengur allt betur en ég átti von á. Reyndar fékk
hann smá sopa í gærkvöld-ég gat ekki tekið allt af honum í einu.
Svo var maður vakinn þrisvar í nótt og það tók smá tíma að róa
litla kútinn og fá hann til að sofna aftur. Æi eins og Haddý frænka
segir þá er þetta eins og sé verið að slíta úr manni hjartað, það
er eins og núna fyrst sé einhver að klippa á naflastrenginn
saman svona lengi. Það styttist óðum í fyrsta afmælið og manni
flýgur eitthvað hratt frá okkur! Það er bara komið sumar aftur og
veðrið er svo sannarlega búið að leika við okkur undanfarna daga.
Við Ingvar fórum í bíltúr í dag og náðum í ömmu gömlu í Byko og var
stubburinn glaður að hitta hana. Svo fórum við í Árbæinn og ákveðið
var að fjárfesta í ís og kæla sig niður örlítið. Umm ekkert smá
gott svona í sólinni. Svo fékk Ingóli að sitja úti á teppi í
garðinum hjá ömmu og afa í Sætakofa (Fagrabæ). Svaka stemning. Ella
og Halli litu svo í heimsókn og var gaman að hitta á þau blessuð.
Þau eru svo dugleg að kíkja til ættingjanna-maður mætti nú alveg
vera duglegri við það humm....En það er svona maður situr bara
heima á pólskunámskeiðum og dundar sér við eldhúsverkin :P Jæja þá
held ég að ég segi þetta gott í bili og þakka fyrir mig- veriði sæl
8)
Erfiðir dagar!
Hann hefur ekki fengið neitt að drekka hjá mér í dag annað en
stoðmjólk í glasi og ekki get ég sagt að það ríki mikil ánægja. Það
er svona að vera góðu vanur! Svo núna eru harðindi hjá sumum! Við
foreldrarnir erum mikið búin að kvíða komandi dögum en þetta kemur
nú allt smám saman. Það er ótrúlegt hvað svona lítill karl getur
verið ákveðinn og hann veit nákvæmlega hvað hann vill þessi elska
dag. Sigtryggur er búinn að eyða deginum í bílaþvott enda veitti
ekki af því, ég hjálpaði aðeins til að byrja með en þurfti svo að
sinna Ingvari mínum enda á hann svo bágt :( Ég bara lét herrann í
kerruna og tók langan göngutúr m.a. inn í Hellisgerði en það er nú
bara hér við hliðina á okkur. Mikið er nú fallegt þar í góðu veðri.
Svo sátum við lengi í úti í garði á teppi og lékum okkur saman-það
er best að lillemann hafi nóg fyrir stafni :lol: Jæja get ekki
skrifað meira núna, verð að taka drenginn og halda leiksýningu
sennilega. Þar til næst-au revoir!
Uss og svei!
hjá mér! Ég hefði nú getað verið búin að skrifa eitthvað undanfarna
daga en hef alltaf fundið eitthvað annað að gera hérna. Það veitir
sko ekki af að taka í gegn hérna í íbúðinni eftir allt þetta sag og
ryk þarna í efra! :S Það er allt gott svosem að frétta héðan. Við
Ingóli skelltum okkur í sveitina á laugardaginn sl. með mömmu og
Grjóna. Það var alveg yndislegt-einmitt sem ég þarfnaðist.
Sigtryggur er alltaf svo upptekinn uppi á lofti allar helgar svo
við ákváðum bara að yfirgefa svæðið og heilsa uppá Bitruna okkar.
Þau voru þarna Ásta og Óli, höfðu mætt til stórbóndans Ingþórs á
föstudeginum og stoppuðu til sunnudags. Við hins vegar komum aftur
á mánudag-enda frídagur. Það var allt svo fínt hérna hjá
húsbóndanum þegar ég kom heim. Búinn að vaska upp eftir helgina og
ganga frá eftir vinnumennina sem voru að hjálpa honum. Svo er ég
bara búin að vera að reyna að taka í gegn hérna í öllu draslinu-ég
er að geggjast á þessu öllu. Alltaf verið að framkvæma og útlitið
hér er eftir því! :cry: En þetta kemur allt með kalda vatninu. Ég
er búinn að henda fullt af dóti og færa til húsgögn inni í
móður minnar-nú er nettengingin eða tölvan sjálf að stríða henni
svo að ekkert gengur hjá henni að komast á netið. Ég var að segja
henni að fá einhvern viðgerðarmann til sín því við finnum ekki út
hvað er að!! Jæja best að reyna að finna eitthvað meira til að
henda hérna-svo er ég búin að vera nota tækifærið og fara með
ýmislegt út í skúr,svona þegar sumir eru ekki heima. Hann vill
alltaf fylla skúrinn af einhverju rusli og ekkert má fara héðan út
fyrir plássleysi en ég fann eitt smá horn þar sem ég kom fyrir
þar til næst!!
Mið vika!
morgun. Gott að geta haft suma hluti á hreinu, maður veit ekki
mikið meira um framtíðina en hvaða dagur er á morgun! Jú annars er
afmælisdagur á morgun-húsbóndinn á þessu heimili fæddist þennan dag
fyrir örfáum árum síðan. Það verður nú eitthvað lítið um
hátíðahöld, ætli ég sjái hann nokkuð að ráði á morgun. Hann vinnur
svo mikið svo þarf hann að hitta hópinn sem hann fer með til Noregs
í sumar á spítalaleikana. Alltaf í boltanum eins Hemmi okkar!! :)
Svo afmælisdagurinn hans verður góður að því leyti að hann kemst í
smá orlof frá nöldrinu í mér :haha: umm ekki slæmt.... Nei nei ég
rólegur en svo þegar Sigtryggur kom heim þá kom Stasi
er Jón Þór mágur einnig búinn að vera hér í kvöld að hjálpa
líka! :haha: Þetta er samt ekki rúllustigi, við erum ekki svo
nútímaleg hérna. Kannski við hefðum bara átt að hafa lyftu! Litli
gaurinn er búinn að fylgjast með atgangnum í kvöld alveg spenntur,
ef hann væri aðeins eldri þá gætum við nýtt hann í að taka til
fyrir okkur-ætli það komi ekki fljótlega að því. Í dag er akkúrat
mánuður í ársafmælið hans-vá hvert fóru allir þessir
næst-góðar stundir!
King Kong og co!!
mikillar skelfingar að sonur minn er sennilega af górilluættum!
Allavega mætti halda það miðað við hljóðin sem hann er farinn að
gefa frá sér þessa dagana...Hann er byrjaður að öskra svona af og
til og heldur víst að hann sé svakalega fyndinn og afli sér
vinsælda á heimilinu-sem hann gerir ekkert sérstaklega. Við
foreldrarnir vorum að reyna að koma honum í skilning um það að
þetta væri ekki fyrirmyndarhegðun ungra drengja en viti
menn-drengurinn skellti upp úr. Ætli hann sé strax kominn á
mótþróaskeiðið-úff mikið verður gaman þegar hann kemst á
unglingsárin ef þetta á eftir að magnast með aldrinum 8| Þessi
dúllurass er nú samt yfirleitt ósköp ljúfur og skemmtilegur
Una vinkona kom aðeins í morgun í kaffi með hana Kívu sína (Karen
Drífa),hún segir nafnið sitt svona litla skottið. Því miður hittust
stubbarnir ekkert því Ingvar var einmmitt að lúra þá og hlaða
batteríin. Svo fórum við mæðginin í göngutúr niður í Fjörð til að
finna eitthvað sniðugt til að gefa húsbóndanum-en hann á afmæli á
Station er að lesa þetta, þá ætlaði ég bara að segja þér að faðir
þinn er hérna hjá okkur núna. Hann er að hjálpa Sigtryggi að smíða
:haha: Alltaf svo gaman hjá okkur hérna í Alþjóðahúsinu í
Hafnarfirði!! Kannski þeir séu að smíða fyrir mig ferðavél svo ég
komist á milli-ég er nefnilega bíllaus þessa dagana, þurft að fegra
verðið leið á rausinu í mér. Fariði vel með ykkur
elskurnar-gúdbæ....
Sumarið er komið-eða hvað??
þegar allt hvarf!! oh, þá nennti ég ekki að skrifa meira, svo núna
er ég sest við skriftir og klukkan að ganga eitt um nótt. Þá eigum
við að vera farin að sofa-en það var mikið um að vera hér á bæ í
kvöld. Pólverjarnir þrír voru hérna til kl.23 svo að hér er mikið
líf og fjör :P Það er allt of mikið að gera hjá Sigtryggi mínum
finnst mér, í vinnu frá morgni langt fram á kvöld! Hann fékk
reyndar smá frí um helgina þegar við fórum á Broadway. Við fórum
með mömmu og Sigurjóni á þessa líka flottu sýningu Nína og
Geiri-söngbók Bó Hall. Ég reyndar sá bara show-ið eftir hlé-missti
alveg af fyrri helmingnum, og mamma er ennþá svo svekkt fyrir mína
hönd, þetta var víst miklu flottara fyrir hlé :( en svona er nú
bara lífið. Ég varð að skjótast heim í mömmuleik og gefa litla
brjóstabelgnum mínum og koma honum í ró! Hann var heima í passi hjá
afa sínum og svo voru vaktaskipti og Júlíanna og Eiki mættu á
svæðið til að taka við. Þau fengu það skemmtilega verkefni að svæfa
lúllann, enda gott fyrir þau að æfa sig áður en krílið þeirra kemur
í heiminn í september! Þegar við Sigtryggur komum hingað heim var
sá stutti steinsofandi í vagninum sínum-jámm það varð bara að keyra
gaurinn um til að svæfa hann-hann hefur sjálfsagt vantað eitthvað
vita af sér. Hann var svo spilandi kátur hérna í kvöld þegar Jarek
hinn pólski tók hann í fangið þegar átti að fara að snæða
litla svo hann gæti setið til borðs með þeim öllum, þá var kátt í
höllinni. Hann er alveg ótrúlegur með þetta að vilja alltaf vera
þar sem fjörið er-einn af
þetta gott heita í bili, er farin að hugsa mikið um rúmið mitt
akkúrat núna svo ég kveð ykkur að sinni og segi góðar stundir gott
Vorilmur í lofti!
amstur dagsins, hann leggur sig reyndar 2svar yfir daginn litli
snúðurinn. Hann er svo yndislegur að það bræðir okkur foreldrana
endalaust :haha: Pólverjarnir mínir elskulegir voru að yfirgefa
ofan í liðið og held ég að þeim hafi líkað það ágætlega-allavegana
akkúrat hérna þegar ég var að elda svo hann fór ekki svangur heim.
Karlanginn er óttalega slappur, búinn að vera með einhverja pest og
viku félagarnir. Hvað haldiði!!? Hann Sigtryggur minn kom bara heim
að fá blóm. Jámm-nú er veturinn barasta liðinn hjá á ljóshraða,
þetta líður svo hratt. Fyrsti sumardagurinn á morgun og maður
finnur þennan vorilm í loftinu. Veðrið er svo fallegt, kvöldin eru
bara yndisleg, ummm....Jæja hef ekki meira að segja í bili en
skrifa kannski bara smá á morgun....Góðar stundir vinir mínir!
Komin í bæinn!
daga, en við fjölskyldan lentum í Hafnarfirði í gærkvöld eftir
nokkurra daga sveitasælu. Mikið hafði ég gott af þessu-það er
nauðsynlegt að fá ferskt Bitru-loft í lungun reglulega :D Við
höfðum það mjög fínt en það var ansi mikið um að vera og ég er
hrædd um að hún móðir mín elskuleg hafi ekki alveg fengið þá hvíld
sem þurfti. Þetta var eiginlega meira eins og hótelrekstur hjá
smá hvíld fljótlega blessunin....Ingvar Óli hafði varla tíma heldur
til að hvíla sig, hann var svo spenntur að fylgjast með krökkunum
úr svefninum, en er í óðaönn að bæta sér það upp nú fyrst hann er
komin heim til sín í friðinn. Svo er maður bara að þvo þvott og
taka eitthvað til hérna á heimilinu og leika húsmóður. Pólverjarnir
mínir voru að fara frá okkur, unnu hérna uppi í kvöld svo það var
mikið eldað og mikið borðað :haha: Það er svo gaman að gefa þeim að
borða, þeir eru svo þakklátir og hrósa manni alltaf-voða sætir
greyin! Ingóli er svaka hrifinn af þeim og vill alltaf vera með
þeim uppi og lætur vel í sér heyra þegar hann má ekki fara til
þeirra! Hann fer örugglega að tala pólsku á undan íslensku :D
Jæja,nú ætla ég að fara inn í stofu og setjast fyrir framan imbann
og horfa á Rome-síðasta þáttinn, hann er víst endursýndur.
Rosalegir þættir!! Góða nótt kæru vinir og dreymi ykkur vel......
Ferðalag!!!
með son minn til að hitta fólkið og dýrin... Tryggurinn okkar mætir
svo á svæðið á laugardag og fær víst að sitja í hjá Kjartani
stórfrænda. Sigtryggur tímir ekki að fara frá risinu strax, ætlar
að eyða dögunum uppi, ásamt Stasi Litháa held ég. Alltaf nóg að
Jæja nú var aldeilis gaman hjá minni í dag-í Bónus :lol: Mikið er
ég hrikalega fegin að vera sloppin þaðan út, ég hef aldrei verslað
eins mikið þarna eins og í dag-aumingja mamma að gera þetta
reglulega. Það er ekki mikið um búðir fyrir norðan eftir að
kaupfélagið á Eyri hætti! Svo það er eins gott að versla vel þegar
fólk á leið í Bitruna. Ég minntist á það í gær í skrifum mínum hér
að ástandið hefði verið svakalegt í páskaeggjadeild Krónunnar í
gær-en vá, í dag var keyrt á mig inni í Bónus! Í alvöru, það var
einu sinni fyrirgefðu! Hvað er að koma fyrir fólk, getum við ekki
aðeins haldið ró okkar þrátt fyrir yfirvofandi hátíðir og lokanir
verslanna í nokkra daga?? Þurfum við virkilega að slást um besta og
ódýrasta bitann með kjafti og klóm?! Ég allavega reyndi að taka
búð, manni líður miklu betur bara með því að anda djúpt. Reyndar
hafa sumir sagt að það renni varla í mér blóðið, en það er kannski
ekki..... Ég óska ykkur öllum gleðilegra páska og borðiði bara nógu
mikið og slappiði af! Sjáumst í næstu viku-gúdbæ.
Styttist í páska!
fyrir hátíðina-jæja allavega ég. Nú stefnum við Ingvar Óli á það að
leggja í hann norður á Strandir á fimmtudaginn. Ég er strax farin
að hlakka til að komast í sæluna þar! En eitt stórt verkefni verð
ég að leysa áður-fara í Bónus!! Eins og það er yndislega
skemmtilegt svona rétt fyrir páska :lol: Ég þurfti aðeins að
skreppa í Krónuna áðan, vantaði kaffi og smér og svona smáræði, það
var svo rólegt þegar ég gekk inn í búðina og fínt að tína í kerruna
góssið sem mig vantaði en svo viti menn-þar sem eggin sem kennd eru
við páska eru geymd-þar var örtröð!! Þeir tóku víst vsk af í dag og
fólk hamstraði þvílíkt og allt að verða búið og ég komst varla að
kassanum fyrir liðinu sem glápti bara á eggin en ekki á þá sem
reyndu að ganga þarna um! Ótrúlegt tillitsleysi hjá sumum en hvað
mér finnst hálf leiðinlegt við hátíðarnar-fólk fær svo mikið
búin að biðja hann pabba minn blessaðan að koma á morgun og sitja
hjá dóttursyni sínum á meðan ég heimsæki bleika svínið þeirra
Jóhannesar og Jóns Ásgeirs. Ekki hætti ég mér með blessað barnið í
þennan frumskóg þar sem allir reyna að keyra þann næsta niður með
innkaupakerrunum til þess eins að næla sér í bestu bitana! Pabbi
hefur nú líka svo gaman að því að koma og hitta litla gaurinn
morgun og læt vita að ég hafi lifað af að fara í verslunarferð!
Bless á meðan og hafið það gott!